Ríki Vatnajökuls - Júní
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Þriðja árið sem Frost og funi reka ferðaþjónustuna á Hofi
      <description>Fyrir þrem árum keyptu hjónin Knútur Bruun og Anna Sigríður Jóhannsdóttir ásamt dóttur Önnu, Kristínu Kjartansdóttur,  ferðaþjónustuna á Hofi í Öræfum með húsum og öllu tilheyrandi.  Þetta er þriðja sumarið sem við rekum ferðaþjónustuna hér á Hofi og líkar vel og erum búin að taka hér allt í gegn segir Knútur. Búið er að endurnýja öll húsgögn í Hlöðunni, gamla þinghúsinu og sumarhúsunum og í þessum húsum eru 41 gistirúm, allt uppbúin rúm.</description>
Humar haldið lifandi til útflutnings
      <description>Það hefur farið lítið fyrir mjög merkilegu verkefni sem verið er að vinna hjá Skinney-Þinganes og í Frumkvöðlasetrinu á Höfn en það gengur út á að athuga hvort mögulegt er að veiða, geyma og flytja lifandi humar frá Hornafirði til markaðar í Evrópu á hagkvæman hátt. Hugmyndin kom upphaflega frá Frumkvöðlasetri Austurlands ehf., síðar komu Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Skinney- Þinganes hf. til samstarfs við verkefnið. Þetta verkefni hefur fengið styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna og AVS rannsóknasjóði í sjávarútvegi.</description>
Engum málum vísað frá, þau eru leyst á staðnum
      <description>Fyrir um það bil tuttugu árum fóru nokkrir karlar á Hornafirði að hittast á laugardagsmorgnum á Hótel Höfn, borða morgunverð saman og ræða þjóðfélagsmálin. Laugardags-karlarnir hafa haldið sínu striki og mætt vikulega, en auðvitað hafa miklar mannabreytingar orðið á þessu tímabili, nokkrir flutt burtu og aðrir komið í staðinn. Ari Jónsson hefur verið fundarstjóri hjá okkur gegnum árin sagði Örn Arnarson, einn félaganna, og vísaði svo öllum fyrirspurnum til Ara sem tók því vel að upplýsa okkur um þá félaga.</description>
Fylgst með stöðu á gangnagerð undir Almannaskarð
      <description>Vegagerð ríkisins hefur útbúið teikningar sem sýna stöðu á gangagerðinni undir Almannaskarð. Teikningarnar eru gerðar eftir upplýsingum sem berast frá eftirlitsaðila Vegagerðarinnar til Vegagerðarinnar í Reykjavík sem teikna myndina eftir þeim upplýsingum. Um leið og teikningin er klár þá birtist hún hér á vefnum undir “Forsíðu” samdægurs sem þýðir að nú geta áhugasamir um jarðgöngin fylgst með bæði hér á vefnum og á SkjáVarpi sem einnig birtir stöðu framkvæmdarinnar.</description>
Mikill áhugi á götuhokkí á Höfn
      <description>Skautadeild Sindra stendur nú fyrir götuhokkí æfingum og verða þær í Íþróttahúsi Heppuskóla. Ráðinn hefur verið þjálfari fyrir deildina og er það Snædís Bjarnadóttir sem hefur verið að spila íshokkí með Skautadeild Akureyrar. Snædís er Hornfirðingur, dóttir Bjarna Jónssonar starfsmans Ratsjárstofnunar og Jóönnu  Sigurðardóttur. Síðasta vetur voru allt að 20 krakkar á aldrinum 10-14 ára að æfa hokkí hjá Skautadeild Sindra. Æfingar verða á miðviku- og mánudögum kl.15 í íþróttahúsinu en unnið er að því að finna framtíðarhúsnæði fyrir deildina. Götuhokkí er eins og íshokkí nema að í stað skauta eru notaðir hjólaskautar</description>
80 til 90 þúsund skógarplöntum plantað
      <description>Í sumar er áætlað að planta 80 – 90 þúsund skógarplöntum í Austur Skaftafellssýslu. Mest verður plantað á Skálafelli í landi Ingibjargar og Torfa, þar verða gróðursettar 40 þúsund plöntur segir Rannveig Einarsdóttir svæðisstjóri hjá Suðurlandsskógum. þá  verður einnig farið að gróðursetja í bæjarlundinn okkar við Drápskletta og ég á von á að starfsfólk Landsbankans komi  fyrir helgina til að gróðursetja, þau komu í fyrra með sína maka og börn ,höfðu kaffi og nesti meðferðis og áttu þarna skemmtilega útivistarstund saman.</description>
Nokkur pláss í söngvakeppnina
      <description>Fyrsta æfing hjá krökkunum fyrir söngvakeppnina sem verður á Humarhátíðinni á laugardeginum kl.14 fór fram um helgina og mættu 9 krakkar og verða þau samtals með 6 atriði. Eins og á síðustu Humarhátíð þá er gert ráð fyrir 10 söngatriðum og því er enn pláss fyrir nokkra krakka sem vilja koma fram. Æfingarnar fara fram í Tónskólanum í Sindrabæ og þeir sem aðstoða krakkana er ekki af verri endanum, en það eru félagarnir Haukur Þorvalds og Jóhann Morávek. Á síðustu Humarhátíð vakti söngvakeppnin mikla athygli og komu þar margir krakkar fram sem eflaust eiga eftir að láta að sé kveða í tónlistarbransanum í framtíðinni.</description>
Gagngerar breytingar á Skaftafellsstofu
      <description>Skaftafellsstofa hefur verið opnuð aftur eftir gagngerar breytingar og hefur stofan verið stækkuð um það rými sem veitingastofan og verslunin voru í. Veitingasölu og matvöruverslun var hætt en í þess stað er þar smá kjörbúðarhorn með nauðsynlegustu matvöru og kaffihorn. Minjagripaverslunin hefur verið stækkuð,einnig er allt sýningarplássið í stofunni. miklu rúmbetra. Búið er að setja upp tölvubúnað og nettenging svo fólk geti kíkt inn á veraldarvefinn og t.d. komist í póstinn sinn.</description>
Veðurhorfur fyrir Humarhátíðarhelgi
      <description>Að sögn Árna Sigurðssonar veðurfræðings hjá veðurstofunni þá er spáin fyrir Hornafjörð næstu daga að búast má við suðlægri átt og víða þokusúld og rigningu af og til. Á miðvikudag má reikna með austlægri átt og vætu og í framhaldi af því er búist við norðlægari átt hér á suð-austurlandinu með einhverri úrkomu. Á miðvikudag munu liggja fyrir betri og nákvæmari spá fyrir Humarhátíðina og er því ekki rétt að örvænta að hún verði vætusöm. Í morgun hefur gengið á með smá skúrum á Höfn, hitastig um 10-12 gráður, logn og útlit fyrir hið besta veður í dag.</description>
Fólk er mjög duglegt að gróðursetja
      <description>Í vor eru 13 ár frá því Gróðrarstöðin í Dilksnesi var opnuð. Eigendur hennar eru hjónin Finndís Harðardóttir og Bjarni Hákonarson. Fyrsta sumarið byrjuðum við bara á að selja stjúpur og svo hefur þetta vaxið svona ár frá ári og umfangið við þetta stækkað segir Finndís. Veðurfar hefur mikil áhrif á allan gróður og  þar með svona starfsemi. Í sumar hefur verið mikil sala í sumarblómum og í tíðarfari eins og verið hefur í sumar er fólk duglegt að gróðursetja og það er duglegt að prófa nýjar tegundir. Vinsælustu sumarblómin segir Finndís að séu stjúpur, hengilóbelía og tóbaksvörn einnig skiptir máli hvaða plöntur henta best á hverjum stað. Hér hentar vel að rækta bellis (fagurfífil), morgunfrúr, stjúpur,daggarbrár silfurkamb skrautnál og hádegisblóm svo eitthvað sé nefnt, þetta eru allt dugleg blóm. Þá hefur sala á kryddjurtum og salat stóraukist og fólk er greinilega mikið farið að nota þessar náttúruafurðir enda bæði hentugt og holt.</description>
Duglegar kvennakórskonur að störfum
      <description>Þeir sem áttu leið um Hafnarbrautina fyrir framan Sparisjóð Hornafjarðar í morgun komust ekki hjá því að sjá þar konur sópa stéttina, reita arfa, skríða á fjórum fótum og hreinsa illgresi af mikilli nákvæmni sem hefur myndast á milli hellna frá því síðasta sumar. Ljúfir tónar Kvennakórs Hornafjarðar hljómuðu af geisladisk út um dyr Sparisjóðsins og ómaði söngurinn um nágrennið og veittum þeim aukin kraft við vinnuna. Þetta voru sem sagt kvennakórskonur að störfum en eins og flestum er kunnugt um þá er þeim engin takmörk sett í dugnaði. Þær hafa tekið að sér ýmis verk til fjáröflunar fyrir kórinn og var þetta eitt slíkt.</description>
Skemmtilegar söguferðir í Suðursveit
      <description>Það færist í aukana að fólk velur gönguferðir sem afþreyingu og til heilsubótar og ekki skemmir það fyrir að þeim fylgi fróðleikur um það sem fyrir augu ber. Hjónin Fjölnir og Þorbjörg á Hala í Suðursveit bjóða upp á gönguferðir með leiðsögn á söguslóðum Þórbergs Þórðarsonar þar sem hver gönguferð um 3-4 klukkutímar. Í ferðunum er farið á ýmsa sögustaði í nágrenni Hala þar sem lögð verður áhersla á náttúruskoðun, menningarminjar í landslagi og gamlar þjóðsögur og sagnir. Þetta er fjórða sumarið sem þau bjóða upp á þessar ferðir og hefur þeimv erið mjög vel tekið. Að sögn Þorbjargar þá er nokkuð um að ferðir eru sérpantaðar fyrir hópa og hafa verið allt að 20 manns í ferðahóp.</description>
Kjörsókn jöfn og þétt í Hafnarskóla í morgun
      <description>Á kjörstað í Hafnarskóla í morgun var það að frétta að kjörsókn hefur verið nokkuð jöfn frá því að kjörstaðurinn opnaði kl. 9. Búist er við að kjörsókn aukist þegar fer að líða á daginn. Veður er gott á Höfn þrátt fyrir að það blási aðeins en veðurspáin til kl. 18 á morgun er austan 13-18 m/s og rigning eða súld, en úrkomulítið austantil fram á kvöld og búist við að það lægi smám saman á morgun, suðaustan 5-10 síðdegis. Hiti 8 til 14 stig. Aðrir kjörstaðir í Sveitarfélaginu eru í Hofgarði í Öræfum, Hrollaugsstöðum í Suðursveit, Holti á Mýrum, Mánagarði í Nesjum og fundarhúsi Lónmanna í Lóni þeir opnuðu nú í hádeginu.</description>
Harkan sex hjá Sindramönnum
      <description>Meistaraflokkur karla hélt austur á Hérað s.l. miðvikudag að spila við Hattarmenn á Vilhjálmsvelli. Ekki var mikið um fína drætti í leiknum sem endaði með markalausu jafntefli. Sindramenn voru þó aðeins ágengari á mark andstæðinga en heimamenn þó svo að færin voru ekki mörg né góð. Tvo byrjunarliðsmenn vantaði í lið Sindra, Kristinn Þór er meiddur og Sindri Ragnarsson er með 6.flokkinn í Vestmannaeyjum. Af þeim Eyjaförum er það að frétta að þeir eru búnir að spila nokkra leiki í kolvitleysu veðri og hefur fótboltinn einkennst af því veðurfari sem er þar ytra. Allskyns uppákomur eru á meðan mótinu stendur, í Ómar Ragnarsson mætti með stjörnuliðið sitt sem er skipað af vel þekktum einstaklingum úr þjóðfélaginu einsog Árna Johnsen sem stóð í markinu.</description>
Ari Þorsteinsson og Fruman hljóta hvatningarviðurkenningu
      <description>Á aðalfundi Þróunarfélags Austurlands sem haldinn var í gær hlaut Frumkvöðlasetur  Austurlands og Ari Þorsteinsson framkvæmdastjóri setursins hvatningarviðurkenningu frá Þróunarfélaginu, Frumkvöðlasetrið hlaut viðurkenninguna fyrir að innleiða áhugaverða nýjung í atvinnuþróunarstarf á Austurlandi og Ari fyrir stjórnun setursins af miklum myndarskap. “Ari Þorsteinsson verkfræðingur hefur stýrt uppbyggingu Frumkvöðlasetursins frá stofnun þess og farist það afar vel úr hendi. Ari býr yfir fagþekkingu og reynslu sem nýtist setrinu vel, er baráttuglaður og bjartsýnn að eðlisfari og á gott með að sjá um öll þau vandasömu samskipti sem óhjákvæmilega fylgja rekstri Frumkvöðlasetursins.  Að auki er Ari hugmyndaríkur og skipuleggur störf sín vel og hafa þeir eiginleikar hans átt drjúgan þátt í því að á vegum Frumkvöðlasetursins er nú rekið fjölbreytt og kröftugt nýsköpunar- og þróunarstarf” sagði Auður Anna Ingólfsdóttir stjórnarmaður Þróunarfélagsins við afhendingu viðurkenningarinnar.</description>
Þakkaði fyrir móttökurnar með því að syngja
      <description>Danskur drengjakór ferðast nú um Ísland og halda drengirnir tíu tónleika víðsvegar um landið. Kórinn er frá Holte á Sjálandi, bæ sem er skammt norðan við Kaupmannahöfn. Þetta er þekktur drengjakór sem í eru þrjátíu strákar á aldrinum 8 – 15 ára og með þeim eru fjórir hljóðfæraleikarar. Í gær skoðuðu drengirnir og fylgdarmenn þeirra þjóðgarðinn í Skaftafelli undir leiðsögn Ragnars Frank þjóðgarðsvarðar. Í lok heimsóknarinnar í Skaftafell þakkaði kórinn fyrir góðar móttökur og leiðsögn um þjóðgarðinn með því að syngja danskt þjóðlag framan við heimili Ragnars þjóðgarðsvarðar og Ullu eiginkonu hans, þeim til mikillar ánægju.</description>
6. flokkur Sindra fór til Vestmannaeyja
      <description>Þeir lögðu af stað héðan eftir hádegi í gær og var ferðinni heitið til Vestmannaeyja þar sem þeir taka þátt í hinu árlega Shellmóti. Ferðin gekk mjög vel þrátt fyrir austan kalda eins og skipsstjórinn á Herjólfi komst að orði, enginn varð sjóveikur en það voru teknar sjóveikistöflur fyrir ferðina svona rétt til öryggis. Að sögn Gísla Más Vilhjálmssonar aðstoðarþjálfara var hópurinn kominn til Eyja um 22:30 og þá beið þeirra matur sem var mjög vel tekið eftir ferðalagið. 6 flokkur karla eru drengir 9 og 10 ára og keppa þeir í Eyjum í dag og næstu daga og halda síðan heim á mánudag. Í ferðina fóru nokkrir foreldrar með til halds og trausts eins og venjan er i slíkum ferðum.</description>
Unnið að gerð upptökubrautar fyrir smábátana
      <description>Nú er verið að gera upptökubraut fyrir smábátana og er hún staðsett við smábátabryggjuna. Búið er að fylla í brautina og láta síga í tilskilinn tíma, en þessa stundina er verið að undirbúa svo hægt sé að steypa. Með þessu er Sveitarfélagið að bæta aðstöðu fyrir smábátaútgerðarmenn og um leið að leggja lokahönd á smábátahöfnina sem er með þeim glæsilegri á landinu. Að sögn Helga Más Pálssonar bæjarverkfræðings þá má reikna með að verkslok verði í byrjun júlí. Það er verktakafyrirtækið Rósaberg sem sér um framkvæmdina fyrir Sveitarfélagið.</description>
Breskir sjálfboðaliðar í þjóðgarðinum
      <description>Undanfarið hafa breskir sjálfboðaliðar unnið hörðum höndum í þjóðgarðinum í Skaftafelli og skila góðu verki, þetta er harðduglegt fólk. Það er heldur ekki slæmt umhverfi sem við bjóðum þeim að vinna í hér upp við Svartafoss segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður. Búið er að endursmíða göngubrúna við Svartafoss einnig er búið að smíða göngupalla í austurheiðinni og nú sem stendur eru vaskar konur að aðstoða Ara Óskar hleðslumeistara við að hlaða upp gamla hesthúsið við Bölta. Aldrei hafa jafnmargir sjálfboðaliðar unnið í þjóðgarðinum og í sumar og það er gaman að fylgjast með þessu unga fólki og hvað það vinnur vel sín störf.</description>
Landsbankinn færði Sindra 20 bolta að gjöf
      <description>Útibú Landsbankans á Höfn  færði UMF  Sindra í dag 20 bolta að gjöf. Boltarnir eru af þrem stærðum og eiga að passa fyrir alla bolta-leikmenn  allt frá þeim minnstu upp í þá stærstu. Þetta er einn liður í  starfi Landsbankans að styrkja KSÍ bæði í karla og kvennaboltanum í Landsbankadeildinni og þetta kemur í framhaldi af því, segir Jóna Ingólfsdóttir útibústjóri Landsbankans á Hornafirði. Þetta er meðal annars gert til að hvetja unglingana til að taka þátt í íþróttastarfi með Sindra og sýna um leið að við erum lifandi og fylgjumst með þessari miklu starfsemi og þátttöku  liðsmanna Sindra, hér á Hornafirði.</description>
Eyfi á Hótel Höfn annað kvöld
      <description>Eyjólfur Kristjánsson einn af okkar betri tónlistamönnum heldur tónleika á Hótel Höfn annað kvöld kl.22. Þar mun hann flytja öll lögin sín um leið og hann fylgir eftir útgáfu af nýjasta geisladiskinum sem hann gaf út sem ber nafnið Stjörnutúrinn. Eyjólfur sem má segja að sé sjóaður í bransanum hefur oft spilað fyrir okkur Hornfirðinga bæði á Þorrablótum og verið með tónleika hér. Fyrst spilaði hann hér 17. júní 1981 þegar hann kom hingað með Hljómsveitinni Hálft í hvoru. Eyjólfur vakti mikla lukku hér á Höfn þegar að hann ásamt Stefáni Hilmarssyni spiluðu á Menningardegi, einnig fóru þeir rúntinn og spiluðu á Leikskólunum og Elliheimilinu við mikinn fögnuð.</description>
11 smáhýsi til viðbótar hafa verið tekin í notkun
      <description>Í gær urðu vegfarendur Hafnar varir við mikla húsflutninga um Víkurbraut, Hafnarbraut  þegar að Guðni Karlsson bifreiðastjóri var að flytja smáhýsi þeirra Náttbólsmanna frá Óslandi þar sem starfsmenn Náttbóls hafa verið að setja þau saman síðustu mánuði. Flutningurinn heppnaðist í alla staði mjög vel og sóma smáhýsin sér vel á tjaldstæðinu fyrir neðan nýja vatnstankinn. Ellefu smáhýsum var bætti við þau sem fyrir voru og eru þau því alls sextán.  Þetta er kærkomin viðbót við þá gistingu sem við getum nú boðið upp í Sveitarfélaginu Hornafirði.  Þjónustumiðstöðin á tjaldstæðinu sér um að bóka í húsin að sögn Sigrúnar Kapitolu hjá Þjónustumiðstöðinni þá er þegar byrjað að bóka í húsin fyrir Humarhátíðina.</description>
Nýi Essoskálinn kominn á fullt skrið
      <description>Nú er nýi Essoskálinn við Vesturbraut 2 kominn með fulla starfsemi og má segja að punkturinn yfir i-ið hafi verið uppsetning á þakinu yfir bensíndælurnar sem nú er komið upp. Nýi skálinn hefur upp á ýmislegt að bjóða svo sem dagvöru, þjónustu við bíleigendur og svo er hægt að setjast niður að fá sér kaffi og nýbakað brauð eða eitthvað af grillinu. Eins og við greindum frá í gær þá hefur Vínbúðin er flutt starfsemi sína í Essoskálann og opnaði þar í gær. Starfsmenn bæjarins eru að leggja loka hönd á hólinn sem er á bakvið Essostöðina og munum við fljótlega sjá hann hulinn grasi.</description>
Kolmuninn búbót fyrir bræðsluna
      <description>Undanfarna daga hafa Ásgrímur Halldórsson  og Jóna Eðvaldsdóttir skip Skinneyjar Þinganess landað kolmunna hjá fiskimjölsverksmiðjunni Skeggey á Hornafirði.  Búið er að bræða 4000 tonn af kolmunna og á Björn Traustason bræðslustjóri von á áframhaldandi löndunum á meðan kolmunnavertíðin er. Heimild er fyrir veiði á 720 þúsund tonnum af kolmunna á þessu ári. Skipin hafa verið að veiðum innan íslensku lögsögunnar og er um 10 tíma sigling til Hornafjarðar. Kolmunninn er unninn bæði í lýsi og mjöl og tekur bræðsla á þúsund tonnum tvo sólarhringa.</description>
Sindraskvísur sigruðu Hött Egilsstöðum 4-0
      <description>Sindri mætti Hetti frá Egilsstöðum í kvöld í meistaraflokki kvenna, og var staðan í hálfleik 1-0 fyrir Sindraskvísur, markið Skoraði Jóna Benný Kristjánsdóttir. Leikurinn var mjög jafn þar til liðið var á seinni hálfleik en þá áttu Sindraskvísurnar sterkari leik og það var á fjórum síðustu mínútunum að Jóna Benný skoraði 3 mörk til viðbótar og tryggði Sindraskvísum yfirgnæfandi sigur. Síðasti leikur þeirra fór 5-1 fyrir Sindra á móti Fjarðarbyggð. Þær trjóna nú á toppunum í sínum riðli og eru taplausar með 10 stig, önnur lið í riðlinum eru Höttur með 3 stig og Fjarðarbyggð með 1 stig en það eru aðeins þessi þrjú lið sem eru að keppa í þessum riðli. Jóna Benný er marka hæðst allar leikmanna í riðlinum með 8 mörk.</description>
Varðeldur og ratleikur í Skaftafelli
      <description>Um stærstu ferðahelgi sumarsins, fyrstu helgina í júlí ætla starfsmenn þjóðgarðsins í Skaftafelli að standa fyrir varðeldi laugardagskvöldið 3. júlí fyrir tjaldgesti. Sunnudaginn 4.júlí kl.11 bjóða svo starfsmennirnir krökkum á aldrinum 8–12 ára að taka þátt í skemmtilegum og fræðandi ratleik. Frá 15. júní–15. ágúst býður þjóðgarðurinn upp á daglegar göngur undir leiðsögn landvarða frá kl. 10:00 og 15:00 um áhugaverð svæði innan þjóðgarðsins, gestum að kostnaðarlausu.</description>
Byrjað að saga legsteina í Flatey á Mýrum
      <description>Eins og framkom hér á vefnum í vetur keypti Álfasteinn á Borgarfirði sögunarverksmiðjuna í Flatey á Mýrum og ætlar að hefja þar starfsemi á næsta ári. Reyndar eru þeir Álfasteinsmenn á undan áætlun því þeir eru byrjaðir að saga legsteina þar. Við förum þangað og suður til að saga legsteina eftir því sem verkefni koma inn en það verður engin föst starfsemi þarna fyrr en næsta vor, þá stefnum við á að fara í þessa verksmiðju á fullu. segir Steinn Eiríksson í Álfasteini. Álfasteinn er því byrjaður að vinna íslenska legsteina í Flatey, mest er unnið stuðlaberg og basaltsteinar einnig höfum við prófað að vinna gabbró og rauða líparítið úr Hamarsfirði. Við höfum verið að grípa í að vinna í íslensku steinana og eru þeir alveg gullfallegir, basaltið og stuðlabergið  er alveg feiknalega fallegt segir Steinn.</description>
Vínbúðin á Höfn hefur opnað í  nýju húsnæði
      <description>Í morgun kl.11 opnaði Vínbúðin á Höfn í glæsilegu nýju húsnæði að Vesturbraut 1, nánar tiltekið í Nýju Esso þjónustumiðstöðinni. Mikið úrval er af víni á nýja staðnum og hefur  vörutegundum verið fjölgað úr 170 í 200. Sú nýbreytni verður að Vínbúðin mun vera með kynningar á léttvínum svo sem víni sem hentar með grillmatnum. Í vínbúðinni er búið að setja upp aðstöðu fyrir viðskiptavinina og geta þeir pakkað inn víni í gjafavöruumbúðir sé það ætlað til gjafa. Í búðinni velur viðskiptavinurinn sjálfur vínið úr hillunni eins og gert var á gamla staðnum. Útibússtjóri Vínbúðarinnar á Höfn er Elín Þórdís Heiðarsdóttir</description>
Ný brú yfir Hornafjarðarfljót næsta stórframkvæmd
      <description>Það fer ekki á milli mála þegar ferðalangar keyra yfir gömlu brúnna yfir Hornafjarðarfljót, að hún er farin að þreytast. Ný brú yfir Hornafjarðarfljót er komin inn á samgönguáætlun og næsta skref er að leggja fram skýrslu um umhverfismat um fleiri en eina tillögu en nokkur ferill er áður en það getur hafist sagði Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra. Það verður næsta stórframkvæmd í samgöngumálum í Austur-Skaftafellssýslu. Brúin yfir Hornafjarðarfljót var byggð 1961 og er 254 metra löng strengjasteypubrú. Nýtt brúarstæði mun verða utar og styttir það hringveginn um 10-11 km. Fyrstu fjárveitingar til framkvæmdanna eru á þessa árs fjárhagsáætlun, sem er að ljúka og verður hún tekin til endurskoðunar í haust.</description>
Miklar væntingar til Laxár í Nesjum
      <description>Laxá í Nesjum opnar formlega 10. júlí næstkomandi með því að bæjarstjóri Albert Eymundsson og forseti bæjarstjórnar Halldóra B. Jónsdóttir sýna færni sína á stöng og reyna að ná þeim stóra. Búið er að bóka svo til öll holl í ánni og að sögn Guðjóns Jónssonar hjá  Veiðifélaginu Laxanes ehf sem rekur ánna þá eru aðeins 4-5 dagar óseldir. Í fyrra gaf áin 88 laxa og 140 árið áður. Mjög gott hlutfall var af stórlaxi og var stærsti laxinn sem veiddist í fyrra 18 pund. Miklar væntingar eru gerðar til veiðinnar í ár enda var sleppt um 18-19 þúsund laxaseiðum á síðasta ári. Reiknað með að allt að 200 laxar geti veiðst þetta sumar sem setur ána í fyrst flokk laxveiðiáa á Íslandi. Það er sífellt aukinn áhugi erlendra veiðimann á ánni og eru þeir nú um 15% þeirra sem hafa bókað ána í sumar.</description>