Þriðja árið sem Frost og funi reka ferðaþjónustuna á Hofi
Fyrir þrem árum keyptu hjónin Knútur Bruun og Anna Sigríður Jóhannsdóttir ásamt dóttur Önnu, Kristínu Kjartansdóttur, ferðaþjónustuna á Hofi í Öræfum með húsum og öllu tilheyrandi. Þetta er þriðja sumarið sem við rekum ferðaþjónustuna hér á Hofi og líkar vel og erum búin að taka hér allt í gegn segir Knútur. Búið er að endurnýja öll húsgögn í Hlöðunni, gamla þinghúsinu og sumarhúsunum og í þessum húsum eru 41 gistirúm, allt uppbúin rúm.
Við erum með morgunmat og kvöldmat fyrir gesti okkar og til að gera þetta einfalt og um leið gott erum við einungis með þrenns konar hráefni til matreiðslu sem er, saltfiskur frá Hauganesi, silungur frá eldisstöðinni þeirra Ásdísar og Sigurðar hér á Hofi og svo úrvals lambakjöt frá Akureyri. Knútur segir að hver hráefnistegund sé matreidd á tvo vegu og með matnum er hvítt og rautt vín og öl. Ferðaþjónustan á Hofi er opin frá 20.maí til 10.sept. en auk hennar rekur Knútur og fjölskylda tvö gistiheimili í Hveragerði sem eru opin allt árið.
Knútur segir að fjölskyldan haldi heilög jólin á Hofi “þar líður okkur afskaplega vel og þar eru svakalega fínir nágrannar og Öræfingar eru gott fólk sem stendur fyrir sínu”.
“Við erum búin að taka lóðina hér mikið í gegn og létum setja þar niður 3 mikla gabbródranga og á einn þeirra, sem er á bak við Hofskirkju, eru komnir tveir skildir, á öðrum þeirra er minnisplata um Friðjón Guðröðarson fyrrum sýslumann Hornfirðinga og minn góða vin, en hinn er glermynd af Lómagnúp eftir Brynhildi Þorgeirsdóttur” segir Knútur.
Vel lítur út með sumarið og útlit á að færri ferðamenn komist þar en vilja.





Skrifa athugasemd