Júní
Anna Björg Guðmundsdóttir og Ingvi Sigurðsson í Skinney-Þinganes
Anna Björg Guðmundsdóttir og Ingvi Sigurðsson í Skinney-Þinganes

30.06.2004 Júní

Humar haldið lifandi til útflutnings

Það hefur farið lítið fyrir mjög merkilegu verkefni sem verið er að vinna hjá Skinney-Þinganes og í Frumkvöðlasetrinu á Höfn en það gengur út á að athuga hvort mögulegt er að veiða, geyma og flytja lifandi humar frá Hornafirði til markaðar í Evrópu á hagkvæman hátt. Hugmyndin kom upphaflega frá Frumkvöðlasetri Austurlands ehf., síðar komu Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Skinney- Þinganes hf. til samstarfs við verkefnið. Þetta verkefni hefur fengið styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna og AVS rannsóknasjóði í sjávarútvegi.

Verkefnið er hluti af lokaverkefni þriggja nemenda í Iðnaðartæknifræði við Tækniháskóla Íslands. Þau sem eru að vinna verkefnið eru Anna Björg Guðmundsdóttir, Jóhanna Gylfadóttir og Óskar S. Jónsson. Anna Björg segir að þau hafi verið að vinna að nokkrum verkefnum og síðan kom sá tímapunktur að þau þurftu að taka ákvörðum um hvaða verkefni þau myndu velja sem lokaverkefni og varð niðurstaðan þetta verkefni. Segir hún að valið á verkefninu hafi m.a. verið hversu spennandi það er og fyrir þann mikla stuðning á áhuga Skinney-Þinganess, RF og Frumkvöðlasetursins á verkefninu.
Gestum og gangandi gefst kostur á því að kynna sér verkefnið, skoða lifandi humar og fræðast um Tækniháskólann og þáttakendur verkefnisins í Pakkhúsinu á laugardeginum 3. júlí frá kl. 13-18.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica