Júní
Vika 27 - 28. júní 2004
Vika 27 - 28. júní 2004

29.06.2004 Júní

Fylgst með stöðu á gangnagerð undir Almannaskarð

Vegagerð ríkisins hefur útbúið teikningar sem sýna stöðu á gangagerðinni undir Almannaskarð. Teikningarnar eru gerðar eftir upplýsingum sem berast frá eftirlitsaðila Vegagerðarinnar til Vegagerðarinnar í Reykjavík sem teikna myndina eftir þeim upplýsingum. Um leið og teikningin er klár þá birtist hún hér á vefnum undir “Forsíðu” samdægurs sem þýðir að nú geta áhugasamir um jarðgöngin fylgst með bæði hér á vefnum og á SkjáVarpi sem einnig birtir stöðu framkvæmdarinnar.

Að sögn Viktors Ingólfssonar hjá vegagerðinni þá hefur þetta lukkast mjög vel og hafa menn haft mikinn áhuga á að fylgjast með gangnagerð sem snertir viðkomandi, hvort sem það var undir Hvalfjörðinn eða stöðu á framakvæmdum við Fáskrúðsfjarðargöng.
Þeir sem vilja fylgjast með stöðunni geta sem sagt sé þetta hér á vefnum eða á SkjáVarpi á þriðjudegi eða miðvikudegi í hverri viku þegar nýjustu upplýsingar berast.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica