Júní
Tekist á í götuhokkí á planinu við Nýheima
Tekist á í götuhokkí á planinu við Nýheima

29.06.2004 Júní

Mikill áhugi á götuhokkí á Höfn

Skautadeild Sindra stendur nú fyrir götuhokkí æfingum og verða þær í Íþróttahúsi Heppuskóla. Ráðinn hefur verið þjálfari fyrir deildina og er það Snædís Bjarnadóttir sem hefur verið að spila íshokkí með Skautadeild Akureyrar. Snædís er Hornfirðingur, dóttir Bjarna Jónssonar starfsmans Ratsjárstofnunar og Jóönnu Sigurðardóttur. Síðasta vetur voru allt að 20 krakkar á aldrinum 10-14 ára að æfa hokkí hjá Skautadeild Sindra. Æfingar verða á miðviku- og mánudögum kl.15 í íþróttahúsinu en unnið er að því að finna framtíðarhúsnæði fyrir deildina. Götuhokkí er eins og íshokkí nema að í stað skauta eru notaðir hjólaskautar

Þeir sem hafa áhuga geta látið skrá sig í Íþróttahúsinu eða mæta á næstu æfingu sem verður miðvikudaginn í næstu viku kl.15. Þeir sem æfa þurfa að koma með kylfu og hjálm sem má vera hjólahjálmur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica