Júní
Í gróðursældinni í Steinadal, Suðursveit
Í gróðursældinni í Steinadal, Suðursveit

29.06.2004 Júní

80 til 90 þúsund skógarplöntum plantað

Í sumar er áætlað að planta 80 – 90 þúsund skógarplöntum í Austur Skaftafellssýslu. Mest verður plantað á Skálafelli í landi Ingibjargar og Torfa, þar verða gróðursettar 40 þúsund plöntur segir Rannveig Einarsdóttir svæðisstjóri hjá Suðurlandsskógum. Þá verður einnig farið að gróðursetja í bæjarlundinn okkar við Drápskletta og ég á von á að starfsfólk Landsbankans komi fyrir helgina til að gróðursetja, þau komu í fyrra með sína maka og börn, höfðu kaffi og nesti meðferðis og áttu þarna skemmtilega útivistarstund saman.

Starfsfólk fleiri fyrirtæki á svæðinu hafa komið og gróðursett og vonandi verða þau enn fleiri í sumar. Þetta er tilvalin útivistarstund fyrir fjölskylduna að koma og setja nokkrar trjáplöntur niður og um leið að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni að skapa notalegt útivistarsvæði fyrir okkur öll sem hér búum.
Mótorhjólaklúbburinn hefur fengið æfingarsvæði rétt við skógarlundinn verðandi, og þeir ætla að setja niður trjáplöntur í limgerði umhverfis sitt svæði og gera það virkilega flott. Mánudaginn 21. júní var fimm milljónasta plantan undir merkjum Suðurlandsskóga í landi Hraunskóga ehf. í Ölfusi Suðurlandsskógum. Svæði Suðurlandsskóga nær frá Keflavík og austur í Lón. Á síðasta ári voru tæplega 40 ársverk unnin undir merkjum Suðurlandsskóga, og flest þau störf sem verða til hjá Suðurlandsskógum eru út til sveita.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica