Júní
Veðrið á Höfn 28. júní 2004 kl.10:05
Veðrið á Höfn 28. júní 2004 kl.10:05

28.06.2004 Júní

Veðurhorfur fyrir Humarhátíðarhelgi

Að sögn Árna Sigurðssonar veðurfræðings hjá veðurstofunni þá er spáin fyrir Hornafjörð næstu daga að búast má við suðlægri átt og víða þokusúld og rigningu af og til. Á miðvikudag má reikna með austlægri átt og vætu og í framhaldi af því er búist við norðlægari átt hér á suð-austurlandinu með einhverri úrkomu. Á miðvikudag munu liggja fyrir betri og nákvæmari spá fyrir Humarhátíðina og er því ekki rétt að örvænta að hún verði vætusöm. Í morgun hefur gengið á með smá skúrum á Höfn, hitastig um 10-12 gráður, logn og útlit fyrir hið besta veður í dag.

Rigningin sem verið síðust daga var kærkomin fyrir þá sem standa að gróðursetningu í Stafafellsfjöllum á nýjum sumarbústaðarlóðum, en þeir sem hafa tekið rúntinn upp í Lón og ekið inn eftir sumarbústaðarsvæðinu hafa tekið eftir dugnaði þeirra sem þar eru að rækta.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica