Skemmtilegar söguferðir í Suðursveit
Það færist í aukana að fólk velur gönguferðir sem afþreyingu og til heilsubótar og ekki skemmir það fyrir að þeim fylgi fróðleikur um það sem fyrir augu ber. Hjónin Fjölnir og Þorbjörg á Hala í Suðursveit bjóða upp á gönguferðir með leiðsögn á söguslóðum Þórbergs Þórðarsonar þar sem hver gönguferð um 3-4 klukkutímar. Í ferðunum er farið á ýmsa sögustaði í nágrenni Hala þar sem lögð verður áhersla á náttúruskoðun, menningarminjar í landslagi og gamlar þjóðsögur og sagnir. Þetta er fjórða sumarið sem þau bjóða upp á þessar ferðir og hefur þeimv erið mjög vel tekið. Að sögn Þorbjargar þá er nokkuð um að ferðir eru sérpantaðar fyrir hópa og hafa verið allt að 20 manns í ferðahóp.
Þeir staðir sem boðið er upp á í gönguferðir eru Þröng, sem er blómaskoðun og jöklaferð, Skjól,- sem er ævafornt fjárskjól, ferð í klukkugil þar sem náttúruan er skoðuð og vitnað í gamlar þjóðsögur, Steinadalur, þar eru fornar rústir og náttúruskoðun, Steinar, Sléttaleiti, þar eru skoðaðar búsetuminjar í landslagnu og svo er það ný “Söguferð með Þórbergi” í Rótargilshelli.
Fyrsta gönguferðin verður fimmtudaginn 1. júlí n.k. og þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í gönguferðunum geta mætt við minnisvarðann á Hala kl 13:00 alla fimmtudaga frá 1. júli til 12. ágúst eða pantað í síma 478 1073 eða 893 2960 einnig er hægt að finna upplýsingar á thorbergur.is
Undantekning á þessum ferðum er þó fimmtudagurinn 8. júlí, en þá er fyrirhugað að fara í Hvannadal og skoða ævafornt fjalhögg sem hefur varðveist þar. Lagt verður af stað kl. 9:00, en um er að ræða erfiða fjallgöngu sem tekur 7-8 klukkustundir. Miðvikudaginn 14, júlí verður lesið úr Vatnadeginum mikla á 30 ára afmælishátíð í Skaftafelli.





Skrifa athugasemd