Kjörsókn jöfn og þétt í Hafnarskóla í morgun
Á kjörstað í Hafnarskóla í morgun var það að frétta að kjörsókn hefur verið nokkuð jöfn frá því að kjörstaðurinn opnaði kl.9. Búist er við að kjörsókn aukist þegar fer að líða á daginn. Veður er gott á Höfn þrátt fyrir að það blási aðeins en veðurspáin til kl. 18 á morgun er austan 13-18 m/s og rigning eða súld, en úrkomulítið austantil fram á kvöld og búist við að það lægi smám saman á morgun, suðaustan 5-10 síðdegis. Hiti 8 til 14 stig. Aðrir kjörstaðir í Sveitarfélaginu eru í Hofgarði í Öræfum, Hrollaugsstöðum í Suðursveit, Holti á Mýrum, Mánagarði í Nesjum og fundarhúsi Lónmanna í Lóni þeir opnuðu nú í hádeginu.
Á kjörstað í morgun voru fulltrúar kjörstjórnar Ásta Sveinbjörnsdóttir, Björn Kristjánsson og Hrefna Lúðvíksdóttir en í yfirkjörstjórn eru Jón St. Friðriksson , Svava Kr. Guðmundsdóttir og Sigfinnur Gunnarsson





Skrifa athugasemd