Harkan sex hjá Sindramönnum
Meistaraflokkur karla hélt austur á Hérað s.l. miðvikudag að spila við Hattarmenn á Vilhjálmsvelli. Ekki var mikið um fína drætti í leiknum sem endaði með markalausu jafntefli. Sindramenn voru þó aðeins ágengari á mark andstæðinga en heimamenn þó svo að færin voru ekki mörg né góð. Tvo byrjunarliðsmenn vantaði í lið Sindra, Kristinn Þór er meiddur og Sindri Ragnarsson er með 6.flokkinn í Vestmannaeyjum. Af þeim Eyjaförum er það að frétta að þeir eru búnir að spila nokkra leiki í kolvitleysu veðri og hefur fótboltinn einkennst af því veðurfari sem er þar ytra. Allskyns uppákomur eru á meðan mótinu stendur, í Ómar Ragnarsson mætti með stjörnuliðið sitt sem er skipað af vel þekktum einstaklingum úr þjóðfélaginu einsog Árna Johnsen sem stóð í markinu.
Að sögn Gísla Más þá ríkir góður andi í liðinu og þrátt fyrir að vindur blási þá haldast allar tímasetningar á mótinu. Í morgun unnu Sindramenn (B) keflavík 2-0. Hægt er að skoða myndir af Sindrastrákunum á heimasíðu mótsins http://shellmot.eyjar.is





Skrifa athugasemd