Júní
Í einu gróðurhúsinu í Dilksnesi, Begga í Garðshorni og Finndís
Í einu gróðurhúsinu í Dilksnesi, Begga í Garðshorni og Finndís

27.06.2004 Júní

Fólk er mjög duglegt að gróðursetja

Í vor eru 13 ár frá því Gróðrarstöðin í Dilksnesi var opnuð. Eigendur hennar eru hjónin Finndís Harðardóttir og Bjarni Hákonarson. Fyrsta sumarið byrjuðum við bara á að selja stjúpur og svo hefur þetta vaxið svona ár frá ári og umfangið við þetta stækkað segir Finndís. Veðurfar hefur mikil áhrif á allan gróður og þar með svona starfsemi. Í sumar hefur verið mikil sala í sumarblómum og í tíðarfari eins og verið hefur í sumar er fólk duglegt að gróðursetja og það er duglegt að prófa nýjar tegundir. Vinsælustu sumarblómin segir Finndís að séu stjúpur, hengilóbelía og tóbaksvörn einnig skiptir máli hvaða plöntur henta best á hverjum stað. Hér hentar vel að rækta bellis (fagurfífil), morgunfrúr, stjúpur,daggarbrár silfurkamb skrautnál og hádegisblóm svo eitthvað sé nefnt, þetta eru allt dugleg blóm. Þá hefur sala á kryddjurtum og salat stóraukist og fólk er greinilega mikið farið að nota þessar náttúruafurðir enda bæði hentugt og holt.

Gróðrarstöðin hefur einnig verið með ræktun á trjáplöntum fyrir Suðurlandsskóga, 40-60 þúsund plöntur á ári af birki, öspum, víði og fleiri tegundum. Mest af plöntum Suðurlandsskóga sem ræktaðar eru í Dilksnesi eru gróðursettar hér í sýslunni og lítils háttar í vestur sýslunni. Finndís segist ekki hafa farið út í ræktun inniblóma vegna þess að til þess þarf upphitun og á þessu svæði er það of mikill kostnaður til að það sé gerlegt.

Yfir sumartímann vinna 6-8 manns hjá gróðrarstöðinni og sér þá Bjarni um slátt á íþróttavöllum og stærri svæðum fyrir bæjarfélagið. Í sumar færði svo Bjarni út kvíarnar og gerðist undirverktaki hjá Sólskógumá Egilsstöðum og sér þar um slátt á stærri flötum á Héraði.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica