Júní
Danskur drengkakór söng við Hæðir í Skaftafelli  @Ragnar Frank
Danskur drengkakór söng við Hæðir í Skaftafelli @Ragnar Frank

25.06.2004 Júní

Þakkaði fyrir móttökurnar með því að syngja

Danskur drengjakór ferðast nú um Ísland og halda drengirnir tíu tónleika víðsvegar um landið. Kórinn er frá Holte á Sjálandi, bæ sem er skammt norðan við Kaupmannahöfn. Þetta er þekktur drengjakór sem í eru þrjátíu strákar á aldrinum 8 – 15 ára og með þeim eru fjórir hljóðfæraleikarar. Í gær skoðuðu drengirnir og fylgdarmenn þeirra þjóðgarðinn í Skaftafelli undir leiðsögn Ragnars Frank þjóðgarðsvarðar. Í lok heimsóknarinnar í Skaftafell þakkaði kórinn fyrir góðar móttökur og leiðsögn um þjóðgarðinn með því að syngja danskt þjóðlag framan við heimili Ragnars þjóðgarðsvarðar og Ullu eiginkonu hans, þeim til mikillar ánægju.

Drengjakórinn heimsækir Jökulsárlón í dag og í kvöld kl. 20.00 syngja drengirnir í Hafnarkirkju. Á efnisskránni eru dönsk lög, þjóðvísur, sálmar, jazz og swing. Stjórnendur eru Steen Lindholm og Kenneth Sichlau. Með kórnum leikur jazztríó sem í eru Mathias Grove Madsen, píanó, Morten Lundsby, bassi og Jepster Uno Kofoed, trommur. það má geta þess til gamans að stjórnandinn, Steen Lindholm er íslendingum að góðu kunnur, enda einn af “tengdasonum” Íslands.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica