Júní
Vinna við nýju upptökubrautina
Vinna við nýju upptökubrautina

24.06.2004 Júní

Unnið að gerð upptökubrautar fyrir smábátana

Nú er verið að gera upptökubraut fyrir smábátana og er hún staðsett við smábátabryggjuna. Búið er að fylla í brautina og láta síga í tilskilinn tíma, en þessa stundina er verið að undirbúa svo hægt sé að steypa. Með þessu er Sveitarfélagið að bæta aðstöðu fyrir smábátaútgerðarmenn og um leið að leggja lokahönd á smábátahöfnina sem er með þeim glæsilegri á landinu. Að sögn Helga Más Pálssonar bæjarverkfræðings þá má reikna með að verkslok verði í byrjun júlí. Það er verktakafyrirtækið Rósaberg sem sér um framkvæmdina fyrir Sveitarfélagið.

Áður þurftu smábátaútgerðarmenn að nota upptökubraut sem er fyrir framan Skinney Þinganes en aðkoma að þeirri braut hefur breyst síðustu árin og því hafa útgerðarmenn þurft að sæta lagi til að hægt væri að ná upp smábátunum á þeim stað.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica