Júní
Árni og Jóna ásamt ásamt yngriflokk Sindra og Sigurði þjálfara
Árni og Jóna ásamt ásamt yngriflokk Sindra og Sigurði þjálfara

23.06.2004 Júní

Landsbankinn færði Sindra 20 bolta að gjöf

Útibú Landsbankans á Höfn færði UMF Sindra í dag 20 bolta að gjöf. Boltarnir eru af þrem stærðum og eiga að passa fyrir alla bolta-leikmenn allt frá þeim minnstu upp í þá stærstu. Þetta er einn liður í starfi Landsbankans að styrkja KSÍ bæði í karla og kvennaboltanum í Landsbankadeildinni og þetta kemur í framhaldi af því, segir Jóna Ingólfsdóttir útibústjóri Landsbankans á Hornafirði. Þetta er meðal annars gert til að hvetja unglingana til að taka þátt í íþróttastarfi með Sindra og sýna um leið að við erum lifandi og fylgjumst með þessari miklu starfsemi og þátttöku liðsmanna Sindra, hér á Hornafirði.

Árni Þorvaldsson stjórnarmaður Sindra tók á móti boltunum og vildi hann koma á framfæri þakklæti til Landsbankans á Höfn fyrir þessa frábæru gjöf.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica