Júní
Eyfi með gítarinn
Eyfi með gítarinn

23.06.2004 Júní

Eyfi á Hótel Höfn annað kvöld

Eyjólfur Kristjánsson einn af okkar betri tónlistamönnum heldur tónleika á Hótel Höfn annað kvöld kl.22. Þar mun hann flytja öll lögin sín um leið og hann fylgir eftir útgáfu af nýjasta geisladiskinum sem hann gaf út sem ber nafnið Stjörnutúrinn. Eyjólfur sem má segja að sé sjóaður í bransanum hefur oft spilað fyrir okkur Hornfirðinga bæði á Þorrablótum og verið með tónleika hér. Fyrst spilaði hann hér 17. júní 1981 þegar hann kom hingað með Hljómsveitinni Hálft í hvoru. Eyjólfur vakti mikla lukku hér á Höfn þegar að hann ásamt Stefáni Hilmarssyni spiluðu á Menningardegi, einnig fóru þeir rúntinn og spiluðu á leikskólunum og Elliheimilinu við mikinn fögnuð.

Tónleikarnir hér eru hluti af hringferð Eyjólfs en hann heldur 17 tónleika á 30 dögum vítt og breitt um landið. Af tilefni tónleikanna ætlar Hótel Höfn að bjóða upp á sérstakt tilboð sem þeir kalla 5 í fötu. Nú er bara að skella sér á hótelið og hlusta á frábæran tónlistarmann. 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica