Júní
Smáhýsin fyrir neðan Nýja vatnstankinn
Smáhýsin fyrir neðan Nýja vatnstankinn

23.06.2004 Júní

11 smáhýsi til viðbótar hafa verið tekin í notkun



Í gær urðu vegfarendur Hafnar varir við mikla húsflutninga um Víkurbraut, Hafnarbraut þegar að Guðni Karlsson bifreiðastjóri var að flytja smáhýsi þeirra Náttbólsmanna frá Óslandi þar sem starfsmenn Náttbóls hafa verið að setja þau saman síðustu mánuði. Flutningurinn heppnaðist í alla staði mjög vel og sóma smáhýsin sér vel á tjaldstæðinu fyrir neðan nýja vatnstankinn. Ellefu smáhýsum var bætti við þau sem fyrir voru og eru þau því alls sextán. Þetta er kærkomin viðbót við þá gistingu sem við getum nú boðið upp í Sveitarfélaginu Hornafirði. Þjónustumiðstöðin á tjaldstæðinu sér um að bóka í húsin að sögn Sigrúnar Kapitolu hjá Þjónustumiðstöðinni þá er þegar byrjað að bóka í húsin fyrir Humarhátíðina.

Smáhýsin fyrir neðan HrossabitahagaSmáhýsin eru upphituð, hafa svefnpláss fyrir allt að 6 manns og í þeim er eldunaraðstaða.

Á neðri myndinn má sjá smáhýsin sem eru fyrir neðan Hrossabitahaga, þau eru í framhaldi af smáhýsunum fyrir neðan nýja vatnstankinn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica