Sindraskvísur sigruðu Hött Egilsstöðum 4-0
Sindri mætti Hetti frá Egilsstöðum í kvöld í meistaraflokki kvenna, og var staðan í hálfleik 1-0 fyrir Sindraskvísur, markið Skoraði Jóna Benný Kristjánsdóttir. Leikurinn var mjög jafn þar til liðið var á seinni hálfleik en þá áttu Sindraskvísurnar sterkari leik og það var á fjórum síðustu mínútunum að Jóna Benný skoraði 3 mörk til viðbótar og tryggði Sindraskvísum yfirgnæfandi sigur. Síðasti leikur þeirra fór 5-1 fyrir Sindra á móti Fjarðarbyggð. Þær trjóna nú á toppunum í sínum riðli og eru taplausar með 10 stig, önnur lið í riðlinum eru Höttur með 3 stig og Fjarðarbyggð með 1 stig en það eru aðeins þessi þrjú lið sem eru að keppa í þessum riðli. Jóna Benný er marka hæðst allar leikmanna í riðlinum með 8 mörk.
Næsti leikur þeirra verður við Fjarðarbyggð fyrir austan 6. júlí en þær eiga fjóra leiki eftir. Flott hjá ykkur Sindraskvísur.





Skrifa athugasemd