Júní
Varðeldur og ratleikur í Skaftafelli
Fréttatilkynning
Um stærstu ferðahelgi sumarsins, fyrstu helgina í júlí ætla starfsmenn þjóðgarðsins í Skaftafelli að standa fyrir varðeldi laugardagskvöldið 3. júlí fyrir tjaldgesti. Sunnudaginn 4.júlí kl.11 bjóða svo starfsmennirnir krökkum á aldrinum 8–12 ára að taka þátt í skemmtilegum og fræðandi ratleik. Frá 15. júní–15. ágúst býður þjóðgarðurinn upp á daglegar göngur undir leiðsögn landvarða frá kl. 10:00 og 15:00 um áhugaverð svæði innan þjóðgarðsins, gestum að kostnaðarlausu.
Starfsmenn Þjóðgarðarins bjóða alla velkomna í Skaftafell þar sem einstaklega fögur gróðursældin er umlukin hinum stórfenglegu skriðjöklum Vatnajökuls.





Skrifa athugasemd