Byrjað að saga legsteina í Flatey á Mýrum
Eins og framkom hér á vefnum í vetur keypti Álfasteinn á Borgarfirði sögunarverksmiðjuna í Flatey á Mýrum og ætlar að hefja þar starfsemi á næsta ári. Reyndar eru þeir Álfasteinsmenn á undan áætlun því þeir eru byrjaðir að saga legsteina þar. Við förum þangað og suður til að saga legsteina eftir því sem verkefni koma inn en það verður engin föst starfsemi þarna fyrr en næsta vor, þá stefnum við á að fara í þessa verksmiðju á fullu. segir Steinn Eiríksson í Álfasteini. Álfasteinn er því byrjaður að vinna íslenska legsteina í Flatey, mest er unnið stuðlaberg og basaltsteinar einnig höfum við prófað að vinna gabbró og rauða líparítið úr Hamarsfirði. Við höfum verið að grípa í að vinna í íslensku steinana og eru þeir alveg gullfallegir, basaltið og stuðlabergið er alveg feiknalega fallegt segir Steinn.
Meðalverð á legsteini hjá Álfasteini er um 80 þúsund, með áletrun. Steinn segir að fólk geti komið með steina til vinnslu ef það vill sjálft velja sér stein til að fá letrað á.
Verslun Álfasteins á Borgarfirði hefur opnað aftur eftir gagngerar breytingar og eins hefur allt fyrirtækið verið endurskipulagt. Eigandi Álfasteins er Steinn Eiríksson frá Brimnesi í Fáskrúðsfirði og starfsmenn eru fimm.





Skrifa athugasemd