Ný brú yfir Hornafjarðarfljót næsta stórframkvæmd
Það fer ekki á milli mála þegar ferðalangar keyra yfir gömlu brúnna yfir Hornafjarðarfljót, að hún er farin að þreytast. Ný brú yfir Hornafjarðarfljót er komin inn á samgönguáætlun og næsta skref er að leggja fram skýrslu um umhverfismat um fleiri en eina tillögu en nokkur ferill er áður en það getur hafist sagði Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra. Það verður næsta stórframkvæmd í samgöngumálum í Austur-Skaftafellssýslu. Brúin yfir Hornafjarðarfljót var byggð 1961 og er 254 metra löng strengjasteypubrú. Nýtt brúarstæði mun verða utar og styttir það hringveginn um 10-11 km. Fyrstu fjárveitingar til framkvæmdanna eru á þessa árs fjárhagsáætlun, sem er að ljúka og verður hún tekin til endurskoðunar í haust.
Að sögn samgönguráðherra verður þá ákveðið hvaða leið verður farin og hvenær hægt verður að hefja framkvæmdir. Þetta er stórt verk líklega upp á 7-900 m.kr. eða svipaður kostnaður og við göngin gegn um Almannaskarð.





Skrifa athugasemd