Miklar væntingar til Laxár í Nesjum
Laxá í Nesjum opnar formlega 10. júlí næstkomandi með því að bæjarstjóri Albert Eymundsson og forseti bæjarstjórnar Halldóra B. Jónsdóttir sýna færni sína á stöng og reyna að ná þeim stóra. Búið er að bóka svo til öll holl í ánni og að sögn Guðjóns Jónssonar hjá Veiðifélaginu Laxanes ehf sem rekur ánna þá eru aðeins 4-5 dagar óseldir. Í fyrra gaf áin 88 laxa og 140 árið áður. Mjög gott hlutfall var af stórlaxi og var stærsti laxinn sem veiddist í fyrra 18 pund. Miklar væntingar eru gerðar til veiðinnar í ár enda var sleppt um 18-19 þúsund laxaseiðum á síðasta ári. Reiknað með að allt að 200 laxar geti veiðst þetta sumar sem setur ána í fyrst flokk laxveiðiáa á Íslandi. Það er sífellt aukinn áhugi erlendra veiðimann á ánni og eru þeir nú um 15% þeirra sem hafa bókað ána í sumar.
Góð aðstaða er fyrir þá sem sækja ána, stutt í alla þjónustu og er gistiskálinn einbýlishús í Nesjahverfi. Mikil aukning var á sjóbirtingi og einnig veiddist eitthvað af bleikju sl. sumar, samtals 560 silungar. Laxá í Nesjum er tveggja stanga á og eru skráðir veiðistaðir alls 24 og vel merktir.





Skrifa athugasemd