Júní
Í Þröng í Suðursveit @Rannveig Einarsdóttir
Í Þröng í Suðursveit @Rannveig Einarsdóttir
Í Þröng í Suðursveit @Rannveig Einarsdóttir

21.06.2004 Júní

Óvissuferð Ferðafélagsins á Jónsmessu

Nú þegar jafndægur nálgast fer Ferðafélag A-Skaft í sína árlegu Jónsmessugöngu

en eins og undanfarin ár þá er þetta óvissuferð. Þeir sem hafa áhuga á að fara í

þessa ferð þurfa aðeins að mæta við Þjónustumiðstöðina, miðvikudagskvöldið 23.júní

kl.20.00 og hafa með sér nesti, góða skó og klæða sig eftir veðri. Farið verður

á einkabílum á óvissustaðinn og þar verður tekin létt ganga sem hentar öllum

ungum sem öldnum. Að sögn Sigurjóns Einarssonar þá verður gengið um einn og

hálfan tíma, ekki langt frá Höfn, það eina sem fékkst upp úr honum var að þetta

er innan við 50 kílómetra frá Höfn. 

 

Ferðafélagið er með skipulagðar ferðir að meðaltali aðra hverja viku yfir sumarið. Það

kappkostar að hafa ferðirnar við allra hæfi, þær geta þó verið miserfiðar. Fastur punktur í starfsemi Ferðafélagsins er rekstur Múlaskála á Lónsöræfum. Farin er á hverju vori vinnuferð inn á Lónsöræfi  og skálinn gerður klár fyrir gesti sumarsins. Helgina 16.-18. júlí n.k. stendur félagið fyrir ævintýrahelgi í nágreni Víkur í Mýrdal þar sem boðið verður upp á jeppaferðir og léttar gönguferðir, tilvalið fyrir fjölskylduna.  Haustlitaferð verður farin í Núpsstaðaskóg í september þegar haustlitirnir fara að skarta sínu fegursta. Nú er bara að gera gönguskóna klára og  mæta á þjónustumiðstöðina á miðvikudagskvöldið og skella sér í óvissuferð á Jónsmessu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica