Norrænir dómsmálaráðherrar á Höfn
Von er á dómsmálaráðherrum norðurlandana ásamt föruneyti til Hafnar í kvöld og er erindi þeirra að funda hér næstu daga ásamt því að skoða sig um. Ísland fer nú með formennsku í norrænu ráðherranefndinni og því er þessi sumarfundur haldinn hér á Höfn. Gestgjafinn Björn Bjarnason dómsmálaráðherra tekur á móti ráðherrunum um borð í Akurey SF og þaðan munu þeir halda í Pakkhúsið þar sem þeir munu snæða hátíðarkvöldverð, þar sem Hótel Höfn verður með Hornfirska afurði í fyrirrúmi. Boðið verður boðið upp á kokteil, með smáréttum sem samanstanda af síld, loðnuhrognum og rækjutörtumr ásamt hörpuskel. Í forrétt verður hreindýra garpaccio og aðalréttur að sjálfsögðu Hornfirskur humar með bankabiggi, í eftirrétt verður síðan súkkulaði Coulant með eldsteiktum ávöxtum.
Dagskrá næstu dag er þéttskipuð hjá nefndinni og fyrir utan fundarsetu þá munu ráðherrar ásamt fylgdarliði fara upp á jökul þar sem þeir munu fara á snjósleða og í jeppaferð. Þegar þeir síðan koma til baka úr jöklaferðinni munu þeir horfa saman á heimsmeistarakeppnina Danmörk-Svíþjóð á breiðtjaldi á Hótel Höfn. Þeir halda héðan á miðvikudag.





Skrifa athugasemd