Júní
Frá lúðrasveitarmótinu í Eyjum (@Sigurgeir Jónasson)
Frá lúðrasveitarmótinu í Eyjum (@Sigurgeir Jónasson)

21.06.2004 Júní

Marseruðu og spiluðu fram undir morgun í Eyjum

Lúðrasveit Hornafjarðar tók um helgina þátt í Landsmóti lúðrasveita sem að þessu sinni var haldið í Vestmannaeyjum. Þetta er 18 landsmótið sem haldið er á 50 árum og var 50 ára afmæli Samtaka Íslenskra lúðrasveita minnst í Vestmannaeyjum. Lúðrasveitin hélt til Vestmannaeyja með Herjólfi á föstudag kl. 12:00, og byrjuðu að spila ásamt Lúðrasveit Reykjavíkur niður í miðbæ stuttu eftir að í land var komið. Það mátti heyra lúðrasveitarhljóm vítt og breytt um eyjarnar þar sem hinar ýmsu lúðrasveitir tóku lögin. Alls voru það 15 hljóðfæraleikarar frá Höfn sem héldu til eyja og voru það alls 250 hljóðfæraleikarar sem tóku þátt í mótinu. Tvær erlendar gestalúðraveitir frá Noregi og Finnlandi tóku einnig þátt og héldu tónleika á föstudagskvöldinu. Á laugardagskvöldinu voru aðal tónleikar mótsins þar sem allar sveitirnar spiluðu stutt prógramm sem endaði síðan með því að allar sveitirnar spiluðu saman þrjú lög.

Að sögn Jóhanns Moráveks þá var haldið sameiginlegt borðhald og því næst dansleikur sem dunaði fram á nótt og endaði hann á því að hljóðfæraleikarar marseruðu um götur bæjarins undir morguninn og spiluðu valin lög, enda er það orðin hefð á slíkum mótum.

Í vetur hafa starfað 22 fastir hljóðfæraleikarar í lúðrasveitinni undir stjórn Jóhanns Moaveks. Lúðrasveitin verður 30 ára á næsta ári og mun verða enn meira áberandi það árið í tilefni afmælisins sagði Jóhann að lokum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica