Júní
Haldið af stað í gönguna
Haldið af stað í gönguna

19.06.2004 Júní

Skemmtileg þjóðhátíðarganga í Nesjum

17. júní hátíðarhöldin í Nesjum voru haldin með sama sniði og undanfarin 17 ár þ.e. farið í skemmtilega ferð um nágrennið. Að þessu sinni var haldið í gripavagni að Ketilaugafjalli og gengið upp skarðið þar. Um 50 manns mættu þetta árið en hópurinn sem fer þessa ferð á Þjóðhátíðardaginn fer stækkandi og sífellt fleiri Hafnarbúar eru farnir að nýta sér þennan valkost á Þjóðhátíðardaginn enda stutt frá Höfn. Margir notuðu tækifærið og týndu flotta steina í ferðinni en af þeim er nóg á þessum slóðum. Hreinn Eiríksson kenndur við Miðsker stjórnaði ferðinni sem tók 2,5 tíma með miklum sóma.

Það voru þeir Seljavallabræður Hjalti og Eiríkur sem áttu veg og vanda að undirbúningi ferðarinnar. Faðir þeirra Egill Jónsson frá Seljavöllum var aldursforseti ferðarinnar og varla mátti sjá hann blása úr nös. Þegar komið var niður úr göngunni var boðið upp á grillaðar pylsur og svaladrykki með.

 

 

Sjá myndasafn


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica