Júní
Svafa Mjöll Jónasar í Sporthöllinni
Svafa Mjöll Jónasar í Sporthöllinni (myndasafn)

18.06.2004 Júní

Búist við mikilli þátttöku í kvennahlaupið á Höfn

Nú styttist í Kvennahlaupið sem hefst kl.11 á morgun laugardag og verður lagt af stað frá Sporthöllinni. Þetta er 15 árið sem Kvennahlaup ÍSÍ fer fram og eru Sjóvá-Almennar aðalstyrktaraðili hlaupsins. Góð þátttaka hefur verið í hlaupinu hér á Hornafirði og segir Svafa Mjöll Jónasar hjá Sporthöllinni að þegar hafi margir skráð sig og ekki endilega heimamenn því fólk sem er hér á ferðalagi ætlar að taka þátt í hlaupinu. Þáttakenndur eru á öllum aldri og hægt er að velja um þrjár hlaupaleiðir, 2 km, 5 km og 7 km leið. Hlaupaleiðirnar verða merktar og verðu hlaupið innanbæjar en 7 km. leiðin verður rétt út fyrir bæinn.

Þáttökugjald er 1000 krónur og fá þáttakenndur bol eins og undanfarin ár. Boðið verður upp á Egils kristal og svo fá allir frítt í sund eftir hlaupið.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica