Júní
Frá hátíðarhöldunum á Hóteltúni 2004
Frá hátíðarhöldunum á Hóteltúni 2004

18.06.2004 Júní

Vel heppnuð hátíðarhöld

Dagskrá þjóhátíðardagsins 17. júní á Höfn fór fram á Hóteltúni í blíðskaparveðri eftir að hafa gengið skrúðgöngu frá Vesturbrautarplaninu undir forustu Lúðrasveitar Hornafjarðar. Mikið var um að vera svo sem ávarp fjallkonunnar sem að þessu sinni var Guðrún Ása Jóhannsdóttir, farið í leiki á túninu, börnin fengu andlitsmálun og var þar íslenski fáninn vinsælastur, boðið var upp á grillaðar pylsur, og að sjálfsögðu voru hestamenn mættir á staðinn og buðu á hestbak svo eitthvað sé nefnt.

Það samdóma álit að 6.flokkur Knattspyrnudeildar Sindra hafi staðið sig mjög vel við undirbúning og umsjón hátíðarhaldanna sem er liður í fjáröflun fyrir 6. flokk.

 

 

 

 Sjá fleiri myndir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica