Júní
5. og 6. flokkur kvenna
5. og 6. flokkur kvenna

18.06.2004 Júní

Vöruvalsmót í Eyjum

Síðustu helgi héldu um 90 manns frá Hornafirði út fyrir landssteinana eða til Vestmannaeyja. Þarna á ferð voru stelpur úr 5. og 6. Flokki Sindra sem og aðstandendur þeirra og þjálfarar, stelpurnar sjálfar voru 36 svo það er greinilegt að stuðningshópurinn hefur verið breiður. Það sem dreif stelpurnar alla leið til Eyja var svokallað Vöruvalsmót sem er mót fyrir stelpur í 5. og 6. Flokki. Sindrastelpurnar voru til fyrirmyndar og stóðu þær sig allar með stakri prýði, komu þær heim með bikara og verðlaunapeninga fyrir góðan árangur og mikla prúðmennsku sem ekki er síður mikill heiður. Úrslitin eru sem hér segir:

5.flokkur A-lið 7.sæti
5.flokkur C-lið 1.sæti
6.flokkur B-lið (lið 1) 2.sæti
6.flokkur B-lið (lið 2) 6.sæti

6. flokkurinn fékk háttvísiverðlaun KSÍ og hlaut að launum stóran bikar. Að lokum var Ljósbrá Ragnarsdóttir valin prúðasti leikmaður 6. flokks á mótinu sem er mjög glæsilegur árangur hjá henni, fyrir þennan titil fékk Ljósbrá stærðar bikar til eignar.
Glæsilegur frammistaða hjá öllum stelpunum og megum við Hornfirðingar vera stoltir af þeim.

Til Hamingju stelpur!

Aðstandendum langar að koma þökkum til eftirfarandi fyrirtækja sem styrktu stelpurnar og sáu til þess að þær kæmust til Vestmannaeyja. Krónan, Vífilfell, Jón Bakari og Miðós

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica