Taka þátt í unglingamenningarmóti Ung i Norden
Elvar Bragi Kristjónsson og Sólveig Sigurðardóttir sem luku námi í 10. bekk Heppuskóla halda til Danmerkur í næstu viku til að taka þátt í unglingamenningarmótinu Ung í Norden sem stendur þar yfir í eina viku. Þau taka þátt í mótinu á vegum Þrykkjunnar en alls taka 20 íslenskir krakkar á aldrinum 14-18 ára þátt í mótinu. Að sögn Hauks Þorvaldssonar æskulýðsfulltrúa þá er þetta er samnorrænt verkefni þar sem hittast unglingar frá Norðurlöndunum og vinna saman ýmis verkefni svo sem tónlist, leiklist, myndgerð og dansi. Mótið sem fer fram á Norður Jótlandi, nánar tiltekið Herrup hefst þann 28. júní og lýkur 4. júlí. Þau Elvar og Sólveig hafa starfað mikið að tónlist- og leiklistarmálum hér á Hornafirði þrátt fyrir ungan aldur.
Elvar og Sólveig stunda bæði nám í Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu, Elvar á trompet og Sólveig á píanó ásamt því stundar hún nám í óbóleik hjá óbókennara á Reyðarfirði. Þau eru bæði liðsmenn í Lúðrasveitar Hornafjarðar og í Lúðrasveit Tónskólans. Elvar syngur og spilar með rokkhljómsveitinni Cock Robin og Túköllunum. Sólveig hefur komið fram við ýmis tækifæri sem einleikari á sínu hljóðfæri og sem undirleikari. Sólveig syngur í stúlknakórnum Vox Lumine og með Samkór Hornafjarðar. Þau hafa bæði leikið í mörgum sýningum hjá Lopa, Leikhópi ungs fólks í Heppuskóla og nú síðast í barnasýningunni Allt í plati. Þau sem liðsmenn Lúðrasveit Hornafjarðar halda nú um helgina til Vestmannaeyja til að taka þar þátt í Lúðrasveitarmóti áður en þau halda utan. Eins og sjá má eru hér á ferðinni verðugir fulltrúar yngri kynslóðarinnar hér á Hornafirði sem munu sóma sér vel meðal ungmenna á Ung í Norden.





Skrifa athugasemd