Júní
Sigling á Sjómannadaginn 2000  (úr myndasafni)
Sigling á Sjómannadaginn 2000 (úr myndasafni)

16.06.2004 Júní

Boðið upp á siglingu út fyrir Ós á föstudag

Skipstjórar á nokkrum Hornfirskum bátum í samráði við Sjómannadagsráð hafa ákveðið að bjóða upp á siglingu út fyrir Ós á föstudag kl.13:00 þar sem siglingin á Sjómannadag féll niður vegna manneklu. Þeir bátar sem munu sigla eru Skinney, Sigurður Ólafsson, Erlingur, Hvanney og Lóðsinn. Það spáir vel og því óþarfi að taka með sjóveikispillurnar. Þeir sem hafa háhuga mæta niður á bryggju kl.13 föstudaginn 18.júní. Búið er að skipa sjómannadagsráð fyrir næsta ár og hefur skipulaginu verið breytt á þann hátt að nú eru það áhafnir sem skipa sjómannadagsráðið og að þessu sinni verður það áhöfnin á Þóri sem tekur að sér hlutverkið. Með því er verið að færa ábyrgðina yfir á bátaflotann sem eflaust mun búa til samkeppni þeirra á milli hvaða sjómannadagur er með glæsilegasta yfirbragði.

Þetta er gerlegt því vegna breytinga á sjósókn hafa áhafnir betri gíma í maí til að undirbúa sjómannadaginn. Sú áhöfn sem skipar sjómannadagsráð velur með sér samstarfsaðila sem koma tveir frá Útvegsmannafélaginu, Skinney-Þinganesi og Bestfiski. Einnig einn frá lóðsinum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica