Júní
Samgöngumálaráðherra Sturla Böðvarsson  þrýstir á happinn
Samgöngumálaráðherra Sturla Böðvarsson þrýstir á happinn

16.06.2004 Júní

Byrjað að sprengja göngin í gegnum Almannaskarð

Í dag var formlega byrjað að sprengja fyrir göngum í gegn um Almannaskarð og var það Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra sem sprengdi fyrstu hleðsluna. “Þessi kafli sem hér er verið að byrja á er mikilvægur þáttur í endurbyggingu hringvegarins. Vegurinn um Almannaskarð er mjög erfiður og brött brekka sem gert var ráð fyrir að endurbyggja og leggja þar nýjan veg og þegar það lá fyrir að það yrði mjög dýr og umfangsmikil aðgerð kom vegagerðin með þá tillögu að grafa frekar göng, og það er það sem hafið er hér í dag. Göng í gegn um Almannaskarð munu stórauka umferðaröryggi á hringveginum og það er það sem skiptir máli” sagði Sturla Böðvarsson.

Að lokinni sprengingu fóru viðstaddir að "gangnamunnanum" þar sem vegagerðarmenn og þeir sem að þessum framkvæmdum koma skáluðu fyrir framkvæmdinni. Norsku verktakarnir Leonhard Nielsen og sönner sjá um borun jarðgangnanna en aðalverktaki er Héraðsverk hf. Veður var eins og best varð á kosið logn og blíða og allmargt fólk viðstatt þessa formlegu athöfn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica