Nýtt þil á Krosseyjarbakka í Hornafjarðarhöfn
Búið er að skrifa upp á verksamning við verktakafyrirtækið Ísar ehf um gerð þils við Krosseyjarbakka í Hornafjarðarhöfn og á verkinu að vera lokið 15. september. Fimm aðilar buðu í verkið og var Ísar með lægsta tilboðið á 30.952 mkr. 64 % af kostnaðaráætlun. Væntanlega verður byrjað á verkinu í næstu viku. Hafnarstjórn hefur samþykkt ákveðna tillögu um grynnslin utan við Hornafjarðarós og er hún til endanlegrar umfjöllunar hjá Siglingarstofnun til samþykktar og er allur undirbúningur að komast á logastig segir Albert Eymundsson bæjarstjóri. Gera á rennu gegnum þessi svokölluðu grynnsli og dýpka þar rennu fyrst og fremst fyrir uppsjávarveiðiskipin þ.e. loðnu og síldveiðiskip. Ekki er endanlega búið að ákveða hve djúpt verður grafið en allavega átta metra segir Albert. Við vonumst eftir að takist að fá sanddæluskip í verkið sem fyrst vegna þess að nú er besti tíminn til að vinna þarna á grynnslunum. Gerðar hafa verið öldumælingar á þessu svæði í mörg ár og því vitað nákvæmlega hvenær hagstæðasti tíminn er.
Ekki verður farið í framkvæmdir á garði út í Einholtskletta á þessu ári en það verður haldið áfram að vinna og hanna þær framkvæmdir og fylgjast þarf vel með öllum breytingum þar og mæla þær. Grjótgarðurinn á Suðurfjörum er farinn að gefa sig og verður garðurinn út í Einholtskletta styrking fyrir fjörurnar. Einholtsklettar eru utan og vestan við Hvanney





Skrifa athugasemd