Júní
Séð yfir hluta af nýja golfvellinum
Séð yfir hluta af nýja golfvellinum

15.06.2004 Júní

Verður 2,5 km eftir stækkun golfvallarins

Vinna er hafin við golfvöllinn á Silfurnesi á Höfn en byrjað var á að stækka völlinn í fyrra. Núna er verið að fullmóta flatirnar, grínin eins og það heitir á golfmáli, og gera þau tilbúin undir sáningu og búa til teiga. Guðný Helgadóttir formaður golfklúbbsins segir að fullgera eigi völlinn í sumar en hann verði ekki formlega opnaður fyrr en 2006 því grasrótin verður að vera orðin þétt og sterk en auðvitað er draumurinn að geta aðeins byrjað næsta haust þ.e.2005.
Völlurinn er núna 1920 m. hringurinn en eftir stækkun verður hann 2.5 km og áfram 9 holur eins og hann er. Hönnuður að golfvellinum er Edvin Ragnarsson og fylgist hann með grín-framkvæmdunum. Mikið er um að vera á golfvellinum á Silfurnesi í sumar og næsta mót verður Hafnarapóteks golfmótið 17.júní. Humarhátíðar-golfmótið verður 2-4 júlí og Hótel Hafnarmótið, sem er stærsta golfmót sumarsins, verður 21.ágúst.

Skráðir félagar í Golfklúbbi Hornafjarðar eru 110. Guðný segir að mikill áhugi sé á golfinu og þátttaka í mótum aukist stöðugt ár frá ári ein og þátttaka á námskeiðum sem verið hafa í sumar er mjög góð.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica