Júní
Landaði 1000 tonnum af kolmuna
Ásgrímur Halldórsson SF landaði um 1000 tonnum af kolmunna á Hornafirði í gær og fer aflinn til bræðslu í fiskimjölsverksmiðju Skeggeyjar ehf. Að sögn starfsmanns bræðslunnar er þetta er fyrsti kolmunnafarmurinn sem landað er á Hornafirði til vinnslu. Um þrjá sólahringa tekur að fullvinna þennan farm. Ásgrím Halldórsson SF er gerður út á kolmunna yfir sumarmánuðina af Síldarvinnslunni sem einnig sér um rekstur fiskmjölsverksmiðju Skeggeyjar. Jóna Eðvaldssóttir SF, skip Skinneyjar Þinganess er væntanleg með kolmunnafarm til Hafnar, en er ekki vitað á þessari stundu hvenær hún landar.
Ásgrímur kemur í október til útgerðar Skinney-Þinganess.




Skrifa athugasemd