Fjörug Færeyjaferð
Á fimmtudaginn s.l. komu drengirnir í 4. flokk karla hjá Sindra siglandi inn Seyðisfjörð með Norrænu eftir að hafa dvalið í vikutíma hjá frændum okkar Færeyingum. Alls fóru 18 drengir í þessa æfinga- og keppnisferð og var dvalið hjá Havnar Bóltfelag í Þórshöfn en það félag heldur upp á 100 ára afmælið sitt á þessu ári. Ferðin gekk í allastaði vel og var rífandi stemning í hópnum. Allar aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru Hornfirðingunum knáu svolítið framandi því eingöngu er spilað á gervigrasi en aðstæður í Færeyjum eru hreint til fyrirmyndar enda sást það vel á getu hinna Færeysku víkinga sem voru úthaldsgóðir og fótafimir með afbrigðum. Margt var sér til gamans gert þessa viku og ekki eingöngu leikinn fótbolti. Sundhöll þeirra í Þórshöfn var heimsótt, farið var í keilu, bíó og auðvitað voru pizzastaðir eyjanna kannaðir í þaula. Það voru þreyttir en sælir ferðalangar sem komu til Hornafjarðar á fimmtudaginn og ekki er nokkur vafi á að þessi ferð á eftir að lifa í minningunni um ókomin ár.
Fjórði flokkur karla vill færa öllum þeim sem studdu þá og styrktu til þessarar farar kærlega fyrir stuðninginn. 4. flokkur karla spilar sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu í dag, sunnudag gegn Þrótti Reykjavík og fer leikurinn fram í Reykjavík.





Skrifa athugasemd