Júní
Sveinbjörn Pálsson og Andrés Einarsson eru meðal annarra smiðir hita-ofnanna
Sveinbjörn Pálsson og Andrés Einarsson eru meðal annarra smiðir hita-ofnanna

12.06.2004 Júní

Nýsmíði á hita-garðofnum hjá Vélsmiðju Hornafjarðar

Hverjum dreymir ekki um að sitja fyrir framan hitaofn út í garði þegar farið er að kólna á kvöldin. Véladeild Vélsmiðju Hornafjarðar hefur m.a. staðið í nýsmíði og hefur nú um skeið framleitt garð-hitaofna sem smíðaðir eru úr gömlum bobbingum sem sóttir hafa verið út á fjörur og endurnýttir með þessu móti. Ofnarnir eru ýmist smíðaðir úr einum eða tveimur bobbingum með fótum og stórum reikháf, algengasta stærðin er um 3 metrar á hæð. Hægt er að láta sérsmíða hitaofna eftir kröfum hvers og eins. Ofnar sem þessir eru orðnir mjög vinsælir í sumarbústöðum og hita mjög vel í kringum sig enda getur bobbingurinn orðið 300 gráða heitur.

Ekki er búið að gefa framleiðslunni nafn og þeir sem hafa góða hugmynd geta sett sig í samband við Vélsmiðjuna. Í dag starfa 17 manns hjá Vélsmiðjunni þar af 7 í véladeildinni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica