Mikil aðsókn á sundæfingar og sundnámskeið
Yfir 50 krakkar eru að æfa sund hjá Sunddeild Sindra og enn hafa ekki allir komist að sem vilja. Nú er verið að fjölga æfingum til að allir geta æft sund. Deildin er með tvö full námskeið og biðlista fyrir 5-6 ára börn. Í dag lauk fyrsta námskeiðinu fyrir 5-6 ára börnin og byrjar nýtt á mánudag. Eins og allir vita þá er sund mjög góð íþrótt fyrir fólk á öllum aldri og best og ekki síst fyrir þau yngstu. Sunddeildin hefur nú náð í þrautreyndan þjálfara, Sigrúnu Hallgrímsdóttur sem vissulega dregur að og líklegt að foreldrar átti sig betur á mikilvægi þess að börn hreyfi sig.
Sunddeildin stefnir á æfingabúðir fyrir 10 ára og eldri 26. - 27. júní á Djúpavogi og að fara með alla þá sem vilja á sumarhátíð ÚÍA á Egilsstöðum 17.-18. júlí. Sunddeildin hvetur foreldra til að láta vita hvernig stendur á hjá þeim þessar helgar því alltaf er gott að hafa góðan stuðning frá foreldrum sem vilja taka þátt í starfinu.





Skrifa athugasemd