Júní
Frá skólastjórnendafundinum (@ Þórgunnur Torfadóttir)
Frá skólastjórnendafundinum (@ Þórgunnur Torfadóttir)

10.06.2004 Júní

Vorfundur skólastjórnenda á Austurlandi

Skólastjórnendur á Austurlandi eru með árlegan vorfund sinn hér á Hornafirði í dag. Fundurinn er í Hafnarskóla og er aðalefni hans samstarf grunn- og framhaldsskóla á Austurlandi og því sitja einnig fulltrúar frá framhaldsskólunum fundinn. Samstarf þessara skólastiga er sífellt að aukast og hafa nemendur í grunnskólum verið að taka áfanga í framhaldsskóla samhliða grunnskólanáminu. Guðmundur Ingi Sigbjörnsson verður með kynningu á Olweusarkerfinu gegn einelti en Hafnar- og Heppuskóli hafa unnið samkvæmt því í tvö ár.

Að fundi loknum verður farið í skoðunarferð, m.a. í Nýheima. Deginum lýkur svo með kvöldverði í Pakkhúsinu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica