Júní
Frá Breiðamerkursandi (mynd ebe)
Frá Breiðamerkursandi (mynd ebe)
Úr Ríki Vatnajökuls, frá Breiðamerkursandi (úr myndasafni @ebe)

10.06.2004 Júní

Ríkið hafnar úrskurði óbyggðanefndar og stefnir í áframhaldandi stríð við landeigendur

Enn á ný verða landeigendur í Öræfum að berjast fyrir eignarrétti á landi sínu gegn ríkinu sem sættir sig ekki við úrskurð óbyggðarnefndar um eignarrétt landeigenda yfir Skeiðarársandi og Breiðamerkursandi. Ríkið setti óbyggðanefnd á fót en sættir sig svo ekki við úrskurð hennar segir Örn Bergsson á Hofi. Það tekur um tvö ár að fá niðurstöður í þessu máli í hæstarétti, fyrst fer það fyrir héraðsdóm og síðan fyrir hæstarétt. Við erum búin að ráða okkur lögmenn til að fara með þetta mál fyrir okkur landeigendur segir Örn, og hvað varðar stækkun Skaftafellsþjóðgarðs eins og málin standa núna þá munum við ekki taka neinn þátt í umræðum um hann né samningum. Við tölum ekkert við þessa menn á meðan þeir fara með þessu ofbeldi gegn okkur og stefna okkur fyrir dómstóla til að hafa af okkur land sem við eigum.

Örn segir að nefnd á vegum umhverfisráðs sé búin að teikna kort, og skila því af sér, með megin hluta af Öræfum inná, í sambandi við stækkun á Skaftafellsþjóðgarði, þar er dregin lína fram með þjóðveginum frá Skaftafelli austur að Fagurhólsmýri,austur fyrir Ingólfshöfða. Meiningin er að ríkið kaupi þetta land áður en Skaftafell verður sett inn á heimsminjaskrá. Þetta sjáum við bara inná korti á netinu en það hefur enginn talað við okkur landeigendur. Tillaga var um að stækka þjóðgarðinn í Skaftafelli og þar var lögð mikil áhersla á að allur Skeiðarársandur og allt landið sem myndast hefur af jökulframburði verði innan þjóðgarðsmarka áður en Skaftafell verður tilnefnt inn á heimsminjaskrá sem staðið hefur til að gera. Síðan ætla þeir að gera Breiðamerkursand að friðlandi, þar með er Jökulsárlón.

Á Breiðamerkursandi eru þrjár eyðijarðir, Fjall er vestast, þá er Breiðamörk og Fell austast og eru margir eigendur að þessum jörðum. Skeiðarársandur er þinglýst eign Önnu Maríu Ragnarsdóttur og Jóns Benediktssonar í Freysnesi. Skaftafell var upphaflega þrjár jarðir og átti Ragnar Stefánsson faðir Önnu Maríu tvær þeirra, Sel og Hæðir, þriðja jörðin var Bölti sem ríkið keypti þegar Skaftafell var gert að þjóðgarði. Síðan var samið við Ragnar um að ríkið fékk Hæðir og Sel en Ragnar fékk Skeiðarársand.Ragnar hafði svo makaskipti við ríkið á parti Bölta í Skeiðarársandi og landi sem hann átti. Gerðardómur sá um mat á þessum skiptum og ef krafa ríkisins nær fram að ganga þá er ríkið að hirða lögmæta eign af erfingjum Ragnars sem þá munu höfða riftunarmál gegn ríkinu um kaupin á þjóðgarðinum.

Menn minnast orða allra þingmanna kjördæmisins á fundi um þjóðlendumálin sem haldinn var í Mánagarði forðum segir Örn, þar sem þeir lýstu því yfir að “ef úrskurður óbyggðarnefndar fellur landeigendum í óhag munum við breyta þjóðlendulögunum”.
Nú liggur úrskurður óbyggðarnefndar fyrir og er ásættanlegur fyrir flesta landeigendur en þá hafnar ríkið úrskurðinum.
Hvað gera þingmenn nú?

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica