Tjaldstæðið getur nú hýst um 800 manns
Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á stöllun í kringum nýja vatnstankinn sem felur í sér að rífa upp þökurnar sem fyrir voru, slétta og búa til stalla og setja síðan þökurnar á aftur. Við þessar breytingar getum við bætt við 70 tjöldum og nýtt það pláss sem er fyrir neðan tankinn” segir Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur. Með þessari aukningu geta nú auðveldlega 800 manns dvalið á tjaldstæðinu á Höfn. Að sögn Huga Einarssonar hjá þjónustumiðstöðinni þá hefur það verið aðdáunarvert að fylgjast með dugnaði krakkana í vinnuskólanum sem sér um að taka upp þökurnar og leggja á ný. Nýja svæðið verður líklegast tilbúið á næstu vikum ef veður helst óbreytt en miðað við slíkar framkvæmdir þá er rigningin vel þegin segir Helgi Már.
Einnig er verið að laga aðgengi fyrir framan smáhýsabyggðina en nýju smáhýsin sem bætast við þau sem fyrir eru koma á næstunni.





Skrifa athugasemd