Mikil aðsókn í unglingavinnuna
Bæjarvinna hjá unglingunum á Hornafirði í 8-9 bekk byrjaði á mánudaginn sl. og fyrsta verkefnið var tiltekt eftir sjómannadags hátíðarhöldin og svo verður haldið áfram við að snyrta og fegra bæinn okkar segir Guðrún Ása verkstjóri og umsjónarmaður vinnuskólans. Mikil aðsókn er í unglingavinnuna og eru komnir á skrá yfir hundrað unglingar sem eru mun fleiri unglingar en gert var ráð fyrir. Bæjarráð var var sammála um að draga ekki úr þeim vinnutíma sem búið var að skipuleggja og endurskoða fjárveitingu í samræmi við það þannig að allir kæmust að. Albert Eymundsson bæjarstjóri sagði að það starf sem unglingarnir innu væri afar mikilvæg fyrir bæinn og þau skiluðu því með sóma. Þetta er alltaf að aukast en það er nóg að gera segir Guðrún Ása, við verðum ekki í neinum vandræðum með verkefni.
Þjóðhátíðardagurinn er á næstu grösum og svo kemur humarhátíðin sem verður fyrstu helgina í júlí og það margt sem þarf að gera í sambandi við hátíðarhöldin bæði fyrir og eftir. Flokksstjórarnir eru byrjaðir fyrir nokkrum dögum að snyrta, planta og slá grasið sem er gróskumikið eins og allur gróður er í vor. Í hverjum vinnuhóp verða 13- 15 unglingar undir góðri stjórn flokksstjóra. Nemendur úr 10. bekk koma til vinnu nokkrum dögum seinna en hin.





Skrifa athugasemd