Skinney Þinganes kaupir Happasæl KE 94
Skinney Þinganes hefur keypt fiskveiðiskipið Happasæl KE 94. Skipið er 357 brúttótonn smíðað í Kína 2001 og var eigandi þess útgerðarfélagið Happi ehf í Njarðvík. Gunnar Ásgeirsson hjá Skinney Þinganesi sagði að ekki fylgdu neinar aflaheimildir skipinu en það verður útbúið til netaveiða og einnig fyrir tog- og snurvoð. Skrifað var undir kaupsamninginn í gær og er Happasæll væntanlegur til sinnar nýju heimahafnar, Hornafjarðar, um mánaðarmót júní júlí nk. Ekki hefur verið ákveðið hver verður skipstjóri á nýja skipinu, Gunnar segir að það komi í ljós með haustinu.
Gunnar sagði að skipið myndi ekki fara til veiða fyrr en í haust. Starfsfólk Skinney-Þinganess fer í sumarfrí 19.júlí og verður fyrirtækið lokað í tæpar 5 vikur.
Gunnar lét vel af aflabrögðum og sagði humarveiði hafa gengið mjög vel en humarinn væri svolítið smár.





Skrifa athugasemd