Sparisjóðsmótið um helgina
Keppt var í karla- og kvennaflokki hjá Golfklúbb Hornafjarðar og voru vegleg verðlaun í boði Sparisjóðs Hornafjarðar. Mót þetta er haldið árlega fyrstu helgina í júní og ber því ávallt upp á sjómannadagshelgina. Ekki þurftu þátttakendur að kvarta yfir starfsemi veðurguðanna því þar skein sól og ekki dropi úr lofti. Þrettán manns tóku þátt í golfmótinu. Mótið var punktakeppni en einnig var keppt í nándarhöggi og í flokki karla á annarri holu sigraði Jóhannes Gestsson og Vífill Karlsson á þeirri þriðju. Í kvennaflokki var það Guðný Helgadóttir sem sigraði á nándarhöggi á fyrstu og sjöttu holu.
Úrslit í punktakeppninni voru sem hér segir:
Karlaflokkur
1. Guðni Rúnar Jónsson, 38 punktar
2. Kristinn Þór Guðlaugsson, 37 punktar
3. Jóhannes Halldór Gestsson, 34 punktar
Kvennaflokkur
1. Guðný Helgadóttir, 36 punktar
2. Guðný Jensdóttir, 29 punktar
3. Linda Helena Tryggvadóttir, 23 punktar
Næsta golfmót verður haldið 17. júní og er það styrkt af Hafnar Apoteki. Það golfmót verður einnig punktakeppni og síðan er það eitt frægasta mót klúbbsins sem verður haldið 25. júní á Jónsmessunótt. Það mót hefur á sér nokkuð frjálslegt yfirbragð og eru tveir saman í liði, sá góði og sá óvani sem sér um að putta. Það mót stendur jafnan fram á nótt.





Skrifa athugasemd