Fjöldi manns mætti á hátíðarhöldin niður á hafnarsvæðinu.
Fjöldi manns fylgdist með skemmtiatriðum niður við höfnina í dag og var þar margt til skemmtunar. Áhöfn Ásgríms Halldórssonar bar sigur úr bítum í kappróðrunum eftir harða keppni þar sem áberandi var hversu vel kvennaliðin stóðu sig. Flekahlaupið, þar sem keppendur þurftu að hlaupa yfir fleka sem voru fljótandi í sjónum og tengdir saman með spotta og lágu yfir í björgunarbát sem var hinum megin við flekana vakti mikla athygli og kátínu þegar að keppendur hver á eftir öðrum náði ekki að fóta sig og steyptist í sjóinn. Allt voru þetta ungir og hraustir drengir sem kepptu en verðlaunin voru bjór þegar í björgunarbátinn var komið. Eftir þessa vætu voru þeir tilbúnir í koddaslaginn. Áhöfn Sigurðar Ólfassonar sýndi hvernig björgunarbátum er skotið út notkun flotgalla.
Hætt var við fyrirhugaða siglingu út fyrir ós þar sem ekki voru nægilega margir bátar til að fara með alla þá sem vildu. Sjómannadagshelgin er bara rétt að byrja og margt skemmtilegt eftir svo sem dansleikur og hátíðarhöldin á Hóteltúninu á morgun.





Skrifa athugasemd