Tennisvöllur tekinn í notkun við Hafnarskóla
Krakkar á öllum aldri geta nú farið að leika sér í tennis, en í dag var óformlega tekinn í notkun tennisvöllurinn við Hafnarskóla. Aðgangur er frjáls, nema iðkendur verða að hliðra til hver fyrir öðrum þannig að 1 hópur ( 4-6 einstaklingar ) spili ekki nema um 1 klukkustund, ef aðrir koma til að leika sér á meðan. Annars auðvitað eins og menn vilja. Áhöld þ.e. spaða og bolta má fá í íþróttahúsinu milli kl. 8 og 16 virka daga en skila verður á sama stað í sama ásigkomulagi. Svo er vísast hægt að verða sér útum tækin í verslunum á staðnum svo iðkendur þurfi ekki að vera háðir opnunartíma íþróttahúss.Iðkendur verða að setja upp net í byrjun og þeir er síðastir eru á vellinum taka það niður og leggja uppundir vegg við skólann.
Tapist boltar eða áhöld frá tennisdeild greiðir viðkomandi hópur fyrir eða sem svarar 200-krónur fyrir glataðan bolta og 3000- fyrir glataðan/skemmdan spaða. Inniæfingar hefjast síðan vonandi í haust í íþróttahúsinu og verður árgjald kr. 5000- fyrir iðkanda , eða kr. 8000- fyrir fjölskyldu ( tíminn frá september 2004 – maí 2005 ) miðað við 1 tíma/viku.
Hægt verður að nálgast tennisreglur í íþróttahúsinu og þá er ekki neitt eftir annað en að finna strigaskóna og skella sér í tennis.





Skrifa athugasemd