Júní
Leikskólarnir í skrúðgöngu um götur Hafnar
Í leikskóla er gaman, þar leika allir saman... heyrðist óma um götur Hafnar þegar að krakkarnir á Leikskólunum Lönguhólum og Krakkakoti gengu í skrúðgöngu um götur bæjarins og sungu vor- og leikskólalög með lögregluna í broddi fylkingar. Labbað var frá Lönguhólum, Víkurbrautina, Hafnarbrautina og sem leið lá niður í Miðbæ þar sem sundið var fyrir gesti og gangandi. Krakkarnir fengu ís niður í Miðbæ enda ekki hægt að sleppa því í þeirri miklu veðurblíðu sem verið hefur í dag.
Ákveðið var að fara í þessa göngu í haust og er stefnt að því að gera hana að árvissum viðburði.





Skrifa athugasemd