Hornfirðingar í 5 sæti með 1.134 kílómetra að baki
Úrslitin í "Hjólað í vinnuna 2004" liggja nú fyrir og stóðu Hornfirðingar sig mjög vel og lentu í 5 sæti með flesta hjólaðað daga og í 10 sæti með flesta hjólaða kílómetra. Tvær stofnanir í sveitarfélaginu voru í öðru sæti í sínum flokki, Heilbrigðisstofnun og Hafnarskóli með hjólaða daga. Alls tóku 289 lið frá 162 fyrirtækjum og stofnunum frá 29 sveitarfélögum þátt í keppninni. Þátttakendur voru 2510, þátttökudagarnir 12.146 (4.84. að meðaltali) og alls voru farnir 93.557 km (37,27 km að meðaltali) sem eru 70 hringir í kringum landið. Þau fyrirtæki og stofnanir á Hornafirði sem tóku þátt voru Heilbrigðisstofnun Suðausturlands, Hafnarskóli, Leikskólarnir Lönguhólar og Krakkakot, Nesjaskóli, Hafnar-Apotek og Sparisjóður Hornafjarðar.
Upplýsingar um fjölda daga og kílómetra sem hjólað var miðað vil fjölda starfsmanna hjá viðkomandi fyrirtæki eða stofnun er hægt að skoða á vefsíðu verkefnisins "Hjólað í vinnuna".





Skrifa athugasemd