Júní
Sóley Ómarsdóttir með kettlinginn
Sóley Ómarsdóttir með kettlinginn

01.06.2004 Júní

Máttur SkjáVarps er mikill

Það er ekki óalgengt að tilkynningar um heimilisdýr sem ekki hafa ratað til síns heima birtast á SkjáVarpi og nær undantekningarlaust þá tekur það ekki nema daginn að eigandi eða einhver sem þekkir til viðkomandi heimilisdýrs lætur vita í uppgefið símanúmer. Þetta gerðist nú síðast í daga þegar Sóley Ómarsdóttir lét vita af litla gulbröndótta kettlingnum sem hún fann á Hrísbrautinni. Eigandinn sá mynd af kettlingnum á SkjáVarpi og sótti kisu til Sóleyjar um miðjann daginn í dag.

Stundum eru kettlingar eða hvolpar ekki orðnir það gamlir að þeir geti verið með hálsól þegar þeir ráfa út um opnar dyr eða glugga til að skoða heiminn en hálsólin er mjög góð þar sem fram koma upplýsingar um hvar þeir eiga heima ef þeir villast um í þeirra stóra heimi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica