Írar, Bretar, Danir og Skotar sjólfboðaliðar í Skaftafelli
Margt fólk kom í Skaftafell um helgina og um 40 tjöld voru þar. Veður var hið besta sólskin og 17-18° hiti. Íslenskir fjallaleiðsögumenn fóru með 40 manna hóp á Hvannadalshnúk þó ekki viðraði vel á þeim slóðum, þar var mjög hvasst 23-25 m.og varla stætt, en þeir létu sig hafa það, sagði Ragnar Frank Kristjánsson þjóðgarðsvörður. Sjálfboðaliðar eru komnir til vinnu í þjóðgarðinum og fleiri eru á leiðinn. Þetta eru Írar, Bretar, Skotar og Danir sem verða hér í viku, síðan kemur næsti hópur 21. júní. Við verðum með sjálfboðaliða í allt sumar og þeir byrja á að smíða fleka (brýr) sem notaðir verða á mýrarsvæði á gönguleiðinni frá Svartafossi að Sjónarnípu.
Timbrið fáum við hjá Vegagerðinni þetta er timbur úr brúm þar sem verið er að endurnýja gólfið en skipt hefur verið um brúargólf á flestum brúm hér í Öræfum í vor og það er það sem við erum að endurnýta og nota á göngustígana segir Ragnar. Farið verður með sjálfboðaliðana í skemmtiferð út í Ingólfshöfða og að Jökulsárlóni og lofa þeim að koma í alvöru kríuvarp við lónið.





Skrifa athugasemd