Júní
Brúin yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi (úr myndasafni EBE)
Brúin yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi (úr myndasafni EBE)

01.06.2004 Júní

Árekstur á brúnni yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi

Tveir fólksbílar lentu í árekstri á brúnni yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi í gærkvöldi um kl.21:30. Ekki urðu alvarleg slys á fólki. Tveir voru í öðrum bílnum og fjórir í hinum. Bílarnir voru á leið til Eskifjarðar og Reykjavíkur. Læknir og sjúkrabíll ásamt bifreið frá Björgunarfélagi Hornafjarðar voru send á staðinn frá Höfn. Bílarnir voru mjög skemmdir eftir áreksturinn og er annar bíllinn talinn ónýtur. Fjarlægja þurfti bílana kranabíl.

Árekstur á brúnni er ekki óalgengur en það er erfitt sjá umferð á móti þegar komið er að brúnni sem er einbreið og aðkoma að henni nokkuð brött. Einnig hefur það verið álit manna að útsýnið yfir Jökulsárlónið þegar komið er að brúnni geti haft truflandi áhrif á ökumenn og því skiptir miklu máli að sína ýtrustu varúð þegar komið er að brúnni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica